Fréttasarpur

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis vegna snjóflóðs í Súðavík 16. janúar 1995

Rannsóknarnefnd Alþingis vegna snjóflóðs í Súðavík 16. janúar 1995, sem starfaði á grundvelli ályktunar Alþingis 30. apríl 2024, afhenti forseta Alþingis skýrslu um rannsóknina kl. 13.00 í dag, mánudaginn 15. desember 2025.

Sama dag kl. 15.00 var á heimasíðu nefndarinnar opnað fyrir aðgang að skýrslunni og gögnum sem fylgja henni í viðaukum. Vefútgáfa skýrslunnar er aðalútgáfa hennar og eru viðaukar með henni einungis birtir á heimasíðu nefndarinnar. Einnig er vísað til þeirra með tenglum þar sem við á umfjöllun í skýrslunni.

Lesa meira

Lok rannsóknar og birting skýrslu rannsóknarnefndar

Rannsóknarnefnd Alþingis vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 sem skipuð var á grundvelli ályktunar Alþingis 30. apríl 2024 um slíka rannsókn hefur lokið rannsókn sinni.

Rannsóknarnefndin afhendir forseta Alþingis skýrslu um rannsóknina mánudaginn 15. desember nk. kl. 13.00. Eftir það er fulltrúum fjölmiðla boðið til kynningar rannsóknarnefndar á rannsókninni og helstu atriðum í skýrslunni kl. 15.00 sama dag. Kynningin fer fram í húsnæði Alþingis, nánar tiltekið ráðstefnusalnum Kvos á 1. hæð Smiðju, Tjarnargötu 9.

Samhliða kynningu á skýrslunni fyrir fulltrúum fjölmiðla þennan dag verður skýrslan birt með gögnum sem fylgja henni. Opnað verður fyrir aðgang að skýrslunni og fylgigögnum hennar á vef rannsóknarnefnda Alþingis, þ.e. á heimasíðu rannsóknarnefndarinnar . Vefútgáfa skýrslunnar er aðalútgáfa hennar.

Lesa meira

Þátttaka rannsóknarnefndar vegna snjóflóðs í Súðavík 16. janúar 1995 í málþinginu Ofanflóð 2025 5.-6. maí nk. og viðvera á Ísafirði og í Súðavík dagana á eftir

Meðlimir rannsóknarnefndar Alþingis vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 verða meðal þátttakenda á málþinginu Ofanflóð 2025 um snjóflóð og samfélög sem fram fer á Ísafirði 5. og 6. maí nk. Nefndin verður svo áfram á Ísafirði og í Súðavík dagana á eftir, 7. og 8. maí, vegna starfa sinna.

Af þessu tilefni vill nefndin láta vita að þau sem kynnu að vilja hitta og ræða við nefndina eða koma upplýsingum á framfæri við hana meðan á dvöl hennar á svæðinu stendur er vitaskuld velkomið að hafa samband í því skyni.

Upplýsingar um netfang og símanúmer nefndarinnar, ásamt frekari upplýsingum um skipan hennar og verkefni, er að finna hér á heimasíðu nefndarinnar.

Lesa meira

Rannsókn vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995

Með ályktun Alþingis nr. 12/154 í samræmi við lög um rannsóknarnefndir, nr. 68/2011, var ákveðið að skipa nefnd þriggja einstaklinga til að rannsaka málsatvik í tengslum við snjóflóð sem féll í Súðavík 16. janúar 1995.

Í nefndina hafa verið skipuð Finnur Þór Vilhjálmsson héraðsdómari, sem er jafnframt formaður nefndarinnar, Dóra Hjálmarsdóttir rafmagnsverkfræðingur, og Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur.

Lesa meira