Fréttir og tilkynningar

Skýrsla rannsóknarnefndar um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna - 12.4.2014

Rannsóknarnefnd Alþingis um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna, sem var skipuð í ágúst 2011 á grundvelli þingsályktunar frá 10. júní 2011, afhenti forseta Alþingis skýrslu sína 10. apríl 2014.

Hér má nálgast vefútgáfu skýrslunnar. Vefútgáfan er aðalútgáfa skýrslunnar.

Lesa meira

Breyting á skipan rannsóknarnefndar um sparisjóðina - 11.10.2012

Forseti Alþingis féllst hinn 20. september sl. á ósk Sigríðar Ingvarsdóttur héraðsdómara frá 5. september sl. um lausn frá starfi formanns rannsóknarnefndar um sparisjóðina. Sigríður hefur snúið til fyrri starfa sem héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Á fundi forsætisnefndar Alþingis í dag greindi forseti Alþingis jafnframt frá því að hann hefði skipað Hrannar Má S. Hafberg, lögfræðing, formann nefndarinnar.

Lesa meira

Skipun rannsóknarnefndar Alþingis sem rannsaka á aðdraganda og orsakir erfiðleika og falls sparisjóðanna - 25.10.2011

Gengið hefur verið frá skipun rannsóknarnefndar Alþingis sem rannsaka á aðdraganda og orsakir erfiðleika og falls sparisjóðanna. Í henni eiga sæti Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari, formaður nefndarinnar, Tinna Finnbogadóttir hagfræðingur og Bjarni Frímann Karlsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Lesa meira

Rannsóknarnefndir Alþingis taka til starfa - 17.10.2011

Á nýafstöðnu þingi samþykkti Alþingi tvær þingsályktanir, annars vegar um rannsókn á Íbúðalánasjóði og hins vegar um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna. Jafnframt voru á þinginu samþykkt almenn lög um rannsóknarnefndir en með þeim er Alþingi fengið þýðingarmikið úrræði til þess að sinna eftirlitshlutverki sínu með framkvæmdarvaldinu. Á grundvelli þeirra hefur forseti Alþingis, að undangengnu samráði innan Alþingis, skipað tvær rannsóknarnefndir til þess að sinna þeim rannsóknum sem þingið hefur samþykkt að hefja.

Lesa meira